Fræðsla – Form samskipta: Ákveðin skilaboð: Þú segir einhverjum hvernig hann lét þér líða á góðan og heiðarlegan hátt. T.d. ef einhver uppnefnir þig segir þú viðkomandi að þetta særi þig og þú biður um að gera það ekki aftur. Árásargjörn skilaboð: Þú tjáir tilfinningar þínar á vondan og óheiðarlegan hátt. T.d. ef einhver uppnefnir þig kallar þú hann enn verra nafni eða ert ögrandi. Hlutlaus skilaboð: Þú deilir ekki tilfinningum þínum með öllum og þú lætur sem að allt sé í lagi. T.d. ef einhver uppnefnir þig þá lætur þú sem að það komi þér ekki í uppnám og lætur því ekki vita hvernig þér líður. Hlutlaus – árásargjörn skilaboð: Þú deilir ekki tilfinningum þínum en að sama skapi þá gerir þú eitthvað til að hefna þín. T.d. ef einhver uppnefnir þig þá lætur þú sem þér sárni ekki, en dreifir ósannindum um hann t.d. í skólanum. 29
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=