Félagsfærnifjör

26 Að kynna félagann Markmið: Æfa reglur tvíhliða samtala og kynnast félaga. Áhöld: Ekkert. Leiðbeiningar: 1. Hópnum er skipt í pör. 2. Pörin kynnast hvert öðru, t.d. með þremur staðreyndum sem þau vissu ekki hvort um annað. 3. Hvert par kynnir félaga sinn fyrir hópnum. Umræðupunktar: · Hvernig gekk að fara eftir reglunum? · Hvaða regla var mikilvægust? · Kom eitthvað á óvart um félagann? Þjálfunarpunktar: · Skiptast á upplýsingum, spyrja opinna spurninga, hlusta. · Ekki þykjast vita allt betur, ekki stríða. · Vera alvarlegur, nota góða raddbeitingu og virða líkamleg mörk.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=