Félagsfærnifjör

Nota góða raddbeitingu Hvað gerist ef við tölum of hátt eða lágt? Ekki tala of lágt því þá heyrir hin manneskjan kannski ekki í þér. Ef manneskjan heyrir ekki í þér mun hún kannski forðast að tala við þig aftur. Það sama á við ef þú talar of hátt. Alvara í spurningum Mikilvægt að reyna að vera ekki kjánalegur eða gera mikið grín þegar þú ert að kynnast einhverjum. Það gæti látið hinni manneskjunni líða illa. Hún skilur kannski ekki húmorinn þinn og heldur að þú sért að gera grín að sér. Ekki stríða Stríðni er mjög óæskileg hegðun ef þú ert að reyna að eignast vini og langar að viðhalda vináttu við einhvern. Jafnvel þótt að þú haldir að þú sért fyndin þá getur þú sett hinn aðilann í uppnám og særa hann. Þetta á sérstaklega við þegar þú ert að kynnast manneskjunni og hún veit ekki enn hvernig húmor þú ert með. Líkamleg mörk Það er vandræðalegt að vera of langt í burtu í samræðum því þá er samtalið ykkar kannski of opinbert. Manneskjunni getur fundist þú skrítinn að vilja eiga samræður þegar þú stendur of langt í burtu. Það er allt í lagi að segja hæ hinum megin á ganginum í skólanum en ekki að halda áfram samræðunum við slíkar aðstæður. Reglan er að standa í um það bil armslengd frá manneskjunni. 23

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=