Félagsfærnifjör

24 Slönguspjallspilið Markmið: Æfa reglur tvíhliða samtala. Áhöld: Plastað ljósrit af spilinu sem fylgir þessum leik og er hér í bókinni, teningur, leikmenn, blað og litir. Fylgiskjal 1. Leiðbeiningar: • Tvö börn spila saman. • Leikmaður kastar teningi og færir peðið áfram. • Sá sem lendir á spurningarreit spyr mótspilarann spurningarinnar. • Sá sem lendir á æfingarreit framkvæmir æfinguna sem þar stendur. • Leikmenn fylgja reglum tvíhliða samtals, t.d. hlusta, bíða eftir að röð komi að sér og svara viðeigandi. • Að lokinni umferð kastar hinn leikmaður teningnum. Umræðupunktar: · Hvernig gekk að spila? · Spurðuð þið fleiri spurninga en á spilinu? · Funduð þið eitthvað sameiginlegt? Þjálfunarpunktar: · Skiptast á upplýsingum. · Spyrja opinna spurninga og aukaspurninga. · Hlusta og vera alvarlegur. · Nota góða raddbeitingu.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=