Félagsfærnifjör

22 Reglur tvíhliða samtala Markmið: Kynna mikilvægi félagsfærni og samskipta. Fræðsla: · Góð samskipti við vini byggjast á hlustun og jafnvægi í upplýsingaskiptum. · Hlustun: Spyrja, hlusta á svar og tengja áframhaldandi spurningar við það sem sagt var. · Ekki tala stöðugt um sjálfan sig. Spyrja opinna spurninga, aukaspurninga Þegar við spyrjum opinna spurninga verða svörin lengri sem getur leitt til frekari samskipta. Lokaðar spurningar gefa okkur aðeins stutt svör, eins og já eða nei. Þetta þýðir ekki að það megi ekki spyrja lokaðra spurninga en gott er að reyna að spyrja ekki of margra slíkra spurninga því þá er eins og þú sért að yfirheyra. Dæmi um opna spurningu er: „Hvað finnst þér skemmtilegt að gera?“ Dæmi og lokaða spurningu er: „Var leikurinn skemmtilegur?“ Spyrja aukaspurninga · Hvernig leið þér? · Var auðvelt að finna hlutinn? · Rákust þið á eitthvað? · Fannst þér þú vera týnd/ur? · Hvernig var þegar ykkur var leiðbeint? · Hver var helsti munurinn? Ekki endurtaka aftur og aftur Af hverju er ekki skemmtilegt að tala alltaf um sama málefnið? Það verður mjög leiðinlegt fyrir hina manneskjuna jafnvel þótt hún hafi áhuga á því. Finnið fjölbreytt áhugamál til að tala um til þess að halda samtalinu áhugaverðu. Ekki þykjast vita betur Hvað getur gerst ef þú lætur alltaf eins og þú vitir allt betur? Ef þú þykist vita allt betur getur hinni manneskjunni liðið illa og langar ekki til að tala við þig aftur. Ekki gagnrýna eða benda á mistök í fari hins aðilans.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=