Félagsfærnifjör

21 Að kynna sig Markmið: Að læra að kynna sig. Við sýnum áhuga á manneskju með því að horfa í augu hennar, hlusta vel og brosa. Áhöld: Ekkert. Leiðbeiningar: 1. Tvö börn byrja á að sýna hvernig á að kynna sig hvort fyrir öðru. 2. Þegar því er lokið fá öll börnin tækifæri til að kynna sig hvort fyrir öðru. Hægt er að leyfa börnunum að rölta um stofuna og kynna sig fyrir þeim sem þau mæta eða leiðbeinandinn ákveður hverjir eiga að kynna sig fyrir hverjum. Fræðsla: · Æfa að kynna sig og segja nafnið sitt, brosa, sýna áhuga. · Koma vel fram við fólk í fyrsta skipti hefur áhrif á frekari samskipti. Umræðupunktar: · Hvernig var að horfa í augun á hinni manneskjunni? · Hvernig var að ná ekki augnsambandi? · Hvað er mikilvægt við að kynnast nýju fólki? · Hvað gerist ef við tölum of lágt eða of hátt? Þjálfunarpunktar: · Ná augnsambandi. · Brosa. · Sýna áhuga. · Tala skýrt.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=