20 Blindraganga Markmið: Kynna mikilvægi félagsfærni og samskipta. Áhöld: Klút til að hylja augu og fjórir hlutir (t.d. flöskur). Leiðbeiningar: 1. Byrjið á að ræða hvað félagsfærni er og hvers vegna hún skiptir máli. Notið myndlíkingar, t.d.: „Hefur einhver gengið með bundið fyrir augun? Líklega rekst þú á eitthvað og endar einhvers staðar annars staðar en þú ætlaðir. Félagsfærni hjálpar okkur að „sjá“ í samskiptum við aðra – vita hvað á að segja, hvenær og hvernig.“ 2. Skiptið hópnum í tvennt. Bindið fyrir augun hjá öðrum helmingnum, hinn fylgist með. 3. Leiðbeinandi setur hluti víðs vegar um herbergið til að búa til hindranir. Það getur verið t.d. borð, stólar, húllahringir, bækur. 4. Börnin sem eru með bundið fyrir augu eiga að ganga af stað og finna einn hlut hvert. 5. Skiptið um hlutverk svo öll fái að prófa að finna hlut. 6. Gerið æfinguna aftur en í þetta skiptið eiga þau sem ekki eru með bundið fyrir augun að leiðbeina þeim sem eru með bundið fyrir augun og hjálpa þeim að finna hlutina. Umræðupunktar: · Hvernig leið þér? · Var auðvelt að finna hlutinn? · Rákust þið á eitthvað? · Fannst þér þú vera týnd/ur? · Hvernig var þegar ykkur var leiðbeint? · Hver var helsti munurinn? Þjálfunarpunktar: · Skortur á félagsfærni getur valdið óöryggi. · Félagsfærni má æfa og bæta. · Virða skoðanir annarra. · Samskipti skipta miklu máli. · Margar óskrifaðar reglur gilda í samskiptum. 3.1 Leikir til að þjálfa samskipti
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=