Félagsfærnifjör

19 3. Samskipti Flest getum við verið sammála um að jákvæð samskipti skipti sköpum fyrir líðan okkar, bæði í vinnu, námi og einkalífi. Þegar við eigum í samskiptum við aðra þroskum við hæfileikann til að setja okkur í spor annarra. Með samkennd skapast tengsl sem byggja á virðingu og vináttu. Samskipti hjálpa okkur einnig að byggja upp sjálfsþekkingu og sjálfsmynd. Samskipti geta farið fram með ýmsum hætti, en þau skiptast almennt í tvo flokka: bein og óbein samskipti. • Bein samskipti felast í því að nota orð til að koma á framfæri hugsunum eða tilfinningum. • Óbein samskipti birtast í tóninum í röddinni, hléum í tali, svipbrigðum, líkamsstöðu og öðrum ómeðvituðum merkjum. Óbein samskipti eru oftast ósjálfráð, en bein samskipti eru meðvituð og hafa skýrt upphaf og endi. Ef barn á erfitt með samskipti getur það verið hindrun fyrir aðra. Því er mikilvægt að þjálfa bæði beina og óbeina samskiptahæfni. Sérstaklega er nauðsynlegt að kenna börnum að leysa ágreining á farsælan hátt. Til að styrkja félagsfærni þarf að kenna börnum að setja sig í spor annarra og meta tilfinningar og líðan þeirra. Þegar kemur að ágreiningsmálum er gott að hvetja börn til að: · skilgreina vandamálið skýrt · skoða ólík sjónarmið · leita mögulegra lausna · velja þá leið sem þeim finnst best og meta afleiðingar hennar Með þessum hætti þróa börn færni til að eiga uppbyggileg samskipti og taka ábyrgð á eigin hegðun í tengslum við aðra.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=