16 Húllahringur í hring Markmið: Samvinna, einbeiting, hreyfifærni. Áhöld: Húllahringur. Leiðbeiningar: 1. Börnin standa í hring og haldast í hendur. Hringurinn er rofin á einum stað á meðan húllahringur er settur milli handa tveggja barna. 2. Leikurinn snýst um að koma húllahringnum í gegn um allan hringinn án þess að börnin sleppi handartakinu. 3. Hvert barn þarf að koma öllum líkamanum í gegn um hringinn og áfram til næsta barns við hliðina. Börnin ræða saman um hvernig sé best að koma húllahringnum áfram. 4. Leikurinn endar þegar húllahringurinn er kominn allan hringinn. Gaman er að taka tímann og taka leikinn tvisvar sinnum og reyna að bæta tímann. Samúræinn Markmið: Einbeiting, samhæfing, viðbragðsflýti. Áhöld: Engin. Leiðbeiningar: 1. Börnin mynda hring. Eitt byrjar sem Samúræi. Samúræi kemur frá Japan og voru vel þjálfaðir stríðsmenn sem þjónuðu herrum sínum og fylgdu ströngum reglum. Samúræjar notuðu ýmis vopn, en katana sverðið er það sem er þekktast. 2. Barnið heldur saman höndum (líkt og í bænastöðu) og fleygir ímyndaða sverðinu sínu í átt að einhverjum í hringnum og segir hátt og snjallt „HA“ 3. Sá sem fær sverðið grípur það með báðum höndum upp fyrir haus og öskrar „HÚ“. 4. Þau sem standa sitt hvoru megin við þann sem fékk sverðið höggva í síðu hans og segja „TJA“. 5. Þá kastar sá sem fékk sverðið til einhvers annars og það sama á sér stað. Þannig heldur leikurinn hratt áfram. Þau börn sem gera mistök falla úr leik. Leikurinn endar þegar einn leikmaður er eftir.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=