15 Tarsan, Jane og ljónið Markmið: Samvinna, líkamleg tjáning. Áhöld: Engin. Leiðbeiningar: 1. Þessi leikur er leikinn með látbragði og er ekki ólíkur leiknum skæri, blað, steinn. 2. Leiðbeinandi skiptir hópnum í tvö lið og ákveður hvar heimahöfn hvors liðs er. Á milli þeirra er lína þar sem liðin mætast og leika leikinn. 3. Hvert lið ákveður sitt látbragð fyrir Tarsan, Jane og ljónið Dæmi um látbragð: · Tarsan stekkur fram, slær sér á brjóst og segir djúpraddaður úúú. · Jane lyftir báðum höndum upp í sigurstöðu og öskrar af krafti. · Ljónið stekkur upp, setur báðar hendur fram og gefur frá sér hátt „urr“ hljóð. 4. Reglan er að Tarsan vinnur ljónið, Jane vinnur Tarsan, ljónið vinnur Jane 5. Liðin mætast á miðjum vellinum á móti hvert öðru. Leiðbeinandinn telur upp að þremur og þá leika börnin það látbragð sem þau vilja (Tarsan, Jane eða ljónið). Sá sem vinnur þann sem stendur á móti honum má elta hann (sem er þá í hinu liðinu) og reyna að klukka áður en viðkomandi kemst í sína heimahöfn. 6. Ef viðkomandi nær að klukka þann sem hann vann í leiknum nær hann honum í sitt lið. 7. Það lið vinnur sem nær öllum leikmönnum yfir í sitt lið.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=