17 Sjóræningjaleikurinn Markmið: Samvinna, hlustun, eftirtekt. Áhöld: Engin. Leiðbeiningar: 1. Leiðbeinandi byrjar á að útskýra þessi tákn fyrir börnunum og þau æfa sig að leika látbragðið sem táknar hvert þessara atriða: · Skjaldbaka: Öll leggjast á bakið (skjaldbaka á hvolfi), setja hendur og fætur upp í loft hrista sig og gefa frá sér skjaldbökuhljóð. Hljóðið er eins og blobblobbblobb · Sjóræningi: Öll standa öðrum fæti og tylla hinum fætinum við hnéð, halda annarri hendi uppi við augað og kíkja í gegn eins og þau séu að horfa í gegnum sjónauka og hinni á öxlina er eins og þau séu með páfagauk á öxlinni. · Maður fyrir borð: Tvö og tvö vinna saman. Annað fer á fjórar fætur á gólfinu og hitt tyllir öðrum fætinum á bakið á því sem er á fjórum fótum. Það heldur annarri hendinni við ennið eins og það sé að leita að manni sem féll útbyrðis. · Allir í matsalinn: Fjórir sitja saman í hring í „lótusstellingu“ og þykjast vera að borða. · Allir í bátana: Þrjú setjast þétt saman í röð á gólfinu og snúa öll í sömu átt og láta sem þau séu að róa bát. 2. Börnin ímynda sér að þau séu á eyðieyju og ganga um hana þar til að leiðbeinandinn kallar skipun, t.d. „Sjóræningi“ eða „Allir í matsalinn“. Börnin bregðast eins hratt og þau geta við skipuninni og gera það látbragð sem felst í henni. Þegar öll hafa æft sig nokkrum sinnum og lært leikinn má bæta keppni við. Þau sem eru síðust að bregðast við skipuninni þurfa þá að yfirgefa eyðieyjuna og setjast fyrir utan hana.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=