14 Appelsínuvangadans Markmið: Samvinna, traust, gleði. Áhöld: Appelsínur (eina fyrir hvert lið). Leiðbeiningar: 1. Börnunum er skipt í lið (5 börn í hverju liði). 2. Fyrsti leikmaðurinn setur appelsínu undir hökuna og réttir næsta liðsmanni hana án þess að nota hendur. Sá liðsmaður tekur á móti appelsínunni með hökunni og afhendir appelsínuna til þess næsta án þess að nota hendur og svo koll af kolli. 3. Ef appelsínan dettur byrjar liðið upp á nýtt. 4. Valfrjálst: nota má olnbogana í staðinn fyrir hökuna ef leikmanni finnst erfitt að hafa svo mikla nálægð við næsta liðsmann. Hringavitleysa Markmið: Athygli, hreyfifærni, samhæfing. Áhöld: Engin. Leiðbeiningar: 1. Börnin standa í hring og horfa á það barn sem stendur þeim á hægri hönd. 2. Leiðbeinandinn segir að barnið sem horft er á sé „fórnarlamb“ þess sem á það horfir. 3. Nú er reglan sú að hvert barn reynir að ganga þrjá hringi í kringum „fórnarlambið sitt“ án þess að rekast utan í annað barn. 4. Í þessum leik getur myndast mikil hringavitleysa þar sem enginn má snerta annan og allir eru að reyna að snúast í kring um sitt fórnarlamb. 5. Leiðbeinandi setur ákveðin tíma eða ákveður hvenær er gott að stoppa.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=