Félagsfærnifjör

13 Kjúklingasúpa Markmið: Að læra nöfn. Áhöld: Autt gólf eða vera úti. Leiðbeiningar: 1. Öll börnin byrja sem egg. Þau ganga á hækjum sér og fara mjög hægt um, hafa gjarnan hendurnar þétt að líkamanum og gefa frá sér mjög lág eða engin hljóð. 2. Þau para sig saman tvö og tvö og fara í leikinn skæri, blað, steinn. 3. Það barn sem vinnur breytist í kjúkling, hitt verður áfram egg. Börnin sem breytast í kjúkling ganga á tánum, hreyfa hendurnar eins og litla vængi og gefa frá sér lág pí-pí hljóð. 4. Eggin eiga nú að leita að eggjum og kjúklingar að kjúklingum. Aftur er farið í leikinn skæri, blað, steinn og nú breytast kjúklingar sem vinna leikinn í hænur. Börnin sem breytast í hænur ganga eðlileg en eilítið hokin, hendurnar tákna stærri vængi og þau gefa frá sér gagg – gagg hljóð. 5. Í næstu umferð leita eggin að eggjum, kjúklingar að kjúklingum, hænur að hænum. Aftur er farið í leikinn skæri, blað, steinn. Þegar hæna vinnur verður hún að hana. Börnin sem breytast í hana ganga um stolt og upprétt, bringan er fram og þau bera höfuðið hátt og gala eins og hanar. 6. Enn leita egg að eggjum, kjúklingar að kjúklingum, hænur að hænum og hanar að hönum. Pörin fara í leikinn skæri, blað, steinn. Haninn sem vinnur verður að kjúklingasúpu. Súpan stendur kyrr og hendur ganga í bylgjum á meðan hún sýður með háu hljóði. Leikurinn er búinn þegar eftir er eitt egg, einn kjúklingur, ein hæna og einn hani. Hin eru öll orðin að kjúklingasúpu.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=