Félagsfærnifjör

12 Zip – Zap – Bong Markmið: Einbeiting, athygli, samvinna. Áhöld: Engin. Leiðbeiningar: 1. Börnin standa í hring. 2. Leikurinn byrjar með einu barni sem bendir á næsta barn annað hvort til hægri eða vinstri og segir „ZIP!“ · Ef „ZIP“ er sent til hægri er notuð vinstri hönd. · Ef „ZIP“ er sent til vinstri er notuð hægri hönd. · Sá sem fær „ZIP“-ið heldur áfram í sömu átt. 3. Ef einhver vill snúa leiknum við, getur hann snúið sér að þeim sem sendi og sagt „BOING!“ Þá breytist áttin, og „ZIP“-ið fer nú í hina áttina. 4. Ef barn vill brjóta upp röðina tekur það skref inn í hringinn, klappar, nær augnsambandi við einhvern annan og segir „ZAP!“ 5. Þá fer röðin beint til þess barns sem það horfði á. Nafnaruna Markmið: Að læra nöfn. Áhöld: Engin. Leiðbeiningar: 1. Börnin sitja í hring. 2. Eitt barn segir nafnið sitt og stendur upp. 3. Næsta barn stendur upp, endurtekur nafnið og segir svo sitt eigið. 4. Þriðja barnið stendur upp og endurtekur nöfnin á undan og bætir sínu við og svo koll af kolli.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=