Félagsfærnifjör

11 Stólastaðreyndaleikurinn Markmið: Að kynnast, sjá hvað er einstakt við hvern og einn og sameina hópinn. Áhöld: Stólar fyrir alla nema einn. Leiðbeiningar: 1. Börnin sitja á stólum í hring nema eitt en það stendur í miðjunni. 2. Barnið sem stendur í miðjunni segir staðreynd um sig. Til dæmis: „Mér finnst gaman að baka.“ 3. Öll börn sem tengja við þá staðreynd standa upp og finna nýjan stól. 4. Það barn sem stendur eftir án stóls fer í miðjuna og segir nýja staðreynd um sjálft sig og leikurinn endurtekur sig. Ég – þú – þú – ég Markmið: Að læra nöfn, efla samskipti og snertingu. Áhöld: Engin. Leiðbeiningar: 1. Börnin mynda hring. 2. Barnið sem byrjar snýr sér að næsta barni, tekur í hönd þess og segir nafnið sitt. 3. Barnið sem er heilsað segir sitt nafn. Fyrsta barnið endurtekur nafn þess sem heilsað var og öfugt. Það myndi hljóma Anna, Palli, Palli, Anna. 4. Barnið sem byrjaði að kynna sig fer svo áfram allan hringinn og tekur í hönd næsta barns og kynnir sig. Þegar það hefur farið allan hringinn tekur barnið sem fyrst var heilsað við og fer allan hringinn og svo koll af kolli. Þannig ná öll börnin að heilsast einu sinni og koma að lokum að þeim stað þar sem þau stóðu fyrst. Anna, Jóna, Jóna, Anna. 5. Hægt er að breyta kveðjunni til að auka fjölbreytni (háa fimmu, hneigja sig, erlendur hreimur).

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=