Félagsfærnifjör

10 2. Kynningaleikir & ísbrjótar Mikilvægt hlutverk leiðbeinenda er að skapa jákvætt andrúmsloft og öruggar og jákvæðar aðstæður svo að leikurinn fari fram og beri tilskilinn árangur. Til þess er gott að hita upp með kynningarleikjum. Kynningarleikir eru almennt einfaldir og hjálpa til við að létta andrúmsloftið og byggja upp traust og vellíðan innan hópsins. Í upphafi hópastarfsins geta þeir gert stemninguna afslappaðri og hvatt börnin til að taka óhrædd virkan þátt. Ísbrjótar gegna svipuðu hlutverki. Tilvalið er að nota slíka leiki reglulega, jafnvel í upphafi hverrar kennslustundar, til að auðvelda samskipti og þátttöku. Mikilvægt er þó að virða mörk barnanna og neyða þau ekki til að taka þátt. Gott er að bjóða þeim börnum sem velja að sitja hjá reglulega að koma inn í leikinn ef þau skipta um skoðun. Partýnafnablaðran Markmið: Að læra nöfn. Áhöld: Blöðrur, pennar, tónlist. Leiðbeiningar: 1. Hvert barn skrifar nafn sitt á uppblásna blöðru. 2. Hressileg tónlist er sett á. 3. Leiðbeinandi segir hópnum að kasta blöðrunum upp í loft og reyna að halda þeim á lofti. 4. Þegar tónlistin stoppar grípur hvert barn eina blöðru og finnur þann sem á nafnið á henni.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=