Kynbundið ofbeldi og skólakerfið - kennarahandbók

76 | Framhaldsskólinn 2890 | Menntamálastofnun 2023 | Kynferðiseinelti – druslustimplun Þrep: Tímalengd: Hugtök tengd verkefninu: 3. þrep 2–60 mín. Einelti, kynferðiseinelti, druslustimplun, kynferðisleg áreitni Undirbúningur: Nauðsynlegt er að hafa lesið kennarahandbókina, sér í lagi um kynferðiseinelti og um viðbrögð ef nemandi opnar sig um erfiða reynslu, nemandi gæti vel skrifað viðkvæmar upplýsingar í síðasta svarinu. Verkefnið hentar tveimur 60 mínútna kennslustundum. Nemendur fá það verkefni að lesa rannsóknina Kynferðiseinelti í íslenskri skólamenningu og mótun kvenleikans og svara neðangreindum spurningum úr henni. Framkvæmd: Markmið verkefnisins er að nemendur vinni með textann um kynferðiseinelti sem má finna hér fyrir neðan og nái tökum á inntaki hans, auk þess að velta viðfangsefninu fyrir sér með sjálfstæðum hætti. Gott er að ljósrita eintök af textanum eða gera hann aðgengilegan á kennsluvef skólans. Nemendur lesa ritgerðina: Skýrsla: „Kynferðiseinelti í íslenskri skólamenningu“ | Skemman og svara eftirfarandi spurningum. Hæfilegur orðafjöldi alls er 600 orð. 1. Hvað er kynferðiseinelti? 2. Með hvaða hætti er það hluti af íslenskri skólamenningu? 3. Með hvaða hætti á það þátt í mótun kvenleikans? 4. Hverjar eru afleiðingar kynferðiseineltis? 5. Hefur þú upplifað eða orðið vör/var/t við kynferðiseinelti? 6. Hvernig finnst þér vera tekið á kynferðiseinelti í skólakerfinu?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=