Í þessu þemaverkefni sem skiptist í kennsluleiðbeiningar og nemendaverkefni eru kynnt helstu einkenni ævintýra. Reiknað er með 6-8 vikna vinnu við verkefnin sem byggð eru að hluta á fjölgreindarkenningum Howard Gardner.
Kennsluleiðbeiningarnar eru á 14 síðum. Hér er að finna m.a. lýsingar á verkmöppu og leiðarbók ásamt skipulagningu á verkefninu.
Þá er kafli um leikræna tjáningu, söguvefur og sögukort, æfingar í sendibréfaritun og leiðbeinngar í ritun ævintýra.
Nemendaefnið er 22 síður. Það inniheldur fjölbreytt verkefni sem öll tengjast ævintýrum á einn eða annan hátt.
Ævintýri og ritun - kennsluleiðbeiningar | 773 kb |
Sækja PDF skjal |