Viðsnúningur

56 6. Myndlæsi Að lesa myndir kallast myndlæsi. Það felst í því að skoða myndir vel, taka eftir smáatriðum og velta fyrir sér hvað þær segja okkur, jafnvel því sem sést ekki beint. Skoðaðu myndina vel og veltu eftirfarandi spurningum fyrir þér. Á hvaða tíma dags gerist atburðurinn? Hvað sérðu á myndinni? Hvaða þrjú orð finnst þér lýsa myndinni? Hvaða stemningu skapa litirnir og formin? Hvaða lag eða tónlist passar við myndina? Af hverju? Lokaðu augunum og lýstu myndinni. Hefur þú lagst í gras eða móa og horft á ský? Sástu einhverjar skýjamyndir?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=