53 5. Aðalpersónur Hverjar eru aðalpersónurnar? Hvaða hegðun eða eiginleikar lýsa Kríu og Sóleyju? Veldu dæmi úr textanum til að styðja við hugmyndir þínar. 6. Aukapersónur Ramon og Hekla eru aukapersónur í sögunni. Skrifaðu persónulýsingu fyrir þau. Þú getur lýst hvoru tveggja, útliti og persónuleika. 7. Sjónarhorn Hver segir söguna? Er hún sögð í fyrstu persónu (ég) eða þriðju persónu (hann/hún/hán)? Hvernig hefur sjónarhornið áhrif á það hvernig þú skilur tilfinningar eða hugsanir persónanna? 8. Myndmál og tákn Hvað dettur þér í hug þegar þú heyrir nöfnin Kría, Lóa, Sóley og Birkir? Hvernig passa nöfnin við söguna?
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=