Viðsnúningur

50 ÞRAUTIR Hér eru tillögur að fjölbreyttum verkefnum sem þú getur unnið eftir að hafa lesið bókina. Verkefnin má vinna í stílabók eða tölvu. Markmiðið er að efla lesskilning, tjáningu, orðaforða og dýpri tengingu við efni sögunnar. 1. Lýsingarorð – persónur sögunnar Skrifaðu lýsingarorð sem þér finnst passa við hverja og eina persónu sögunnar: Kríu, Sóleyju, Heklu, Ramon og Lóu litlu systur Kríu. Hvernig lýsa orðin persónunni? Lýsa þau góðum eiginleikum, slæmum eða bara hlutlausum staðreyndum? Flokkaðu lýsingarorðin sem þú valdir í:  jákvæð  neikvæð  hlutlaus Dæmi: Lýsingarorð Nafn Tegund Ástæða Óörugg Kría neikvæð Kría verður óörugg þegar hún heldur að Sóley sé orðin nánari öðrum en henni. 

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=