Viðsnúningur

12 Stelpurnar byrja á að synda nokkrar ferðir í útilauginni og fara svo í leiki. Þær æfa sig að kafa, láta sig fljóta, fara margar ferðir í rennibrautinni og enda svo í heita pottinum. „Ertu búin að pakka?“ spyr Sóley. Hún kvíðir því að Kría fari, vonar hálft í hvoru að hún hætti bara við. Amma hennar og afi myndu örugglega leyfa henni að búa hjá sér eða hún gæti flutt heim til Sóleyjar og þá gætu þær áfram verið samferða í skólann. Ef mamma væri til dæmis til í að skipta um herbergi við Sóleyju væri nóg pláss fyrir þær Kríu þar saman ... „Búin? Ég er ekki einu sinni byrjuð,“ svarar Kría. „Við tökum bara eina, tvær ferðatöskur hvert. Þetta verða mest föt, held ég.“ „Hvað með allt hitt?“ „Við munum leigja íbúð með húsgögnum.“ Sóley kinkar kolli. Hún fiktar í sundgleraugunum sínum og veltir fyrir sér við hvern hún eigi eiginlega að leika á meðan Kría er í burtu. „Ætlarðu að taka með þér sunddót?“ spyr hún. „Já, auðvitað.“ „Ó, ætlarðu að æfa sund í London?“ „Örugglega. Eða vonandi. En mamma segir að við förum kannski líka í dagsferð á ströndina á meðan það er ennþá hlýtt.“

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=