Útgáfudagur MMS 30. apríl 2019

vor 2019 14 haust 2018 ÍSLENSKA – YNGSTA STIG MILLI HIMINS OG JARÐAR – HRAFNINN Hrafninn tilheyrir lestrarbókaflokknum Milli himins og jarðar þar sem markmiðið er að vekja forvitni nemenda og virkja áhuga þeirra til lestrar. Textinn miðast við börn á yngsta stigi sem hafa náð undirstöðuatriðum lestrar en eldri nemendur gætu einnig haft ánægju af bókinni. Meðal annars má fræðast um líf hrafna á Íslandi, hvernig þeir búa sér til hreiður og verjast óvinum. Neðst á hverri blaðsíðu eru spurningar úr efninu þar sem reynir á ályktun, staðreyndir og orðskilning. Auk þess er á hverri opnu spurning sem er til þess gerð að vekja forvitni lesandans og leiða hann í gegnum bókina en til að finna svarið er flett á næstu opnu. Aftast eru verkefni sem tengjast efni bókarinnar og orðanotkun. EFNIÐ SAMANSTENDUR AF: nemendabók, rafbók og hljóðbók LISTIN AÐ LESA OG SKRIFA – DÝRABÆR Í Dýrabæ eru bókstafirnir d og au sérstaklega æfðir en bókin er nr. 13a í röð 42 léttlestrarbóka. Lestrarkennsluefnið Listin að lesa og skrifa er fyrir byrjendur í lestri og byggist fyrst og fremst á hljóðaaðferð. Það samanstendur af léttlestrarbókum, örbókum, vinnubókum, lestrarspili, kennsluleiðbeiningum og verkefnum á vef. Textinn er að mestu án samhljóðasambanda með greinilegu letri og góðu línubili. EFNIÐ SAMANSTENDUR AF: nemendabók og rafbók LISTIN AÐ LESA OG SKRIFA – KISAN MÍN Í bókinni Kisan mín eru bókstafirnir d og au sérstaklega æfðir en bókin er nr. 13b í röð 42 léttlestrarbóka. Lestrarkennsluefnið Listin að lesa og skrifa er fyrir byrjendur í lestri og byggist fyrst og fremst á hljóðaaðferð. Það samanstendur af léttlestrarbókum, örbókum, vinnubókum, lestrarspili, kennsluleiðbeiningum og verkefnum á vef. Textinn er að mestu án samhljóðasambanda með greinilegu letri og góðu línubili. EFNIÐ SAMANSTENDUR AF: nemendabók og rafbók

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=