Sjálfbærni - Rit um grunnþætti menntunar

Grunnþættir menntunar 35 Jafnrétti Jafnrétti er óhugsandi án þróunar til sjálfbærni og breytts efnahagskerfis. Markmið sjálfbærrar þróunar er jafnrétti kynslóðanna en án sjálfbærni gengur núlifandi kynslóð freklega á rétt komandi kynslóða til lífs og heilbrigðis. En sjálfbærni næst heldur ekki nema jafnrétti ríki, ekki síst jafnrétti kynja. Ósjálfbærir lífshættir okkar, og það efnahagskerfi sem við búum við, gerir sífellt fleira fólk fátækt og venjulega er það svo að þar sem fátækt ríkir bitnar hún mest á konum og börnum. Umhverfisvandinn, svo sem hlýnun loftslags, bitnar ekki síst á fátækum konum í þróunarlöndum. Þeirra er að safna eldiviði og sækja vatn og þær þurfa sífellt að fara lengra frá heimili sínu til að finna slíkar nauðþurftir. Almennt hafa konur minni tækifæri en karlar til að taka þátt og vera með þar sem afdrifaríkustu ákvarðanir samfélagsins eru teknar. Oftast er það hlutskipti þeirra að vinna þau mikilvægu störf sem standa utan hagkerfisins, rétt eins og gjafir og þjónusta náttúrunnar. Þær annast heimili, börn og aldraða og nánasta umhverfi fjölskyldunnar. Konur eru helmingur mannkyns, með dýrmæta reynslu og þekkingu sem nýtast vel við úrlausn ýmissa verkefna. Hefðu konur jafnan aðgang að völdum og tækifærum og karlar má búast við að þær beindu fjármagni til fólks og samfélags í því skyni að draga úr fátækt, bæta umhverfi og auka menntun öllum til góðs. En milljónir kvenna ráða varla yfir eigin líkama. Fólki á Jörðinni fjölgar stöðugt með síauknu álagi á auðlindir, náttúru og umhverfi en engu að síður banna sum trúarbrögð konum að nota virkar getnaðarvarnir til að takmarka barneignir sínar. Heilbrigði og velferð Við erum sett saman úr náttúruefnum, hverju öðru? Menn lifa ekki án nærandi fæðu nema í örfáar vikur, ekki án vatns nema í örfáa daga og ekki án súrefnis nema í örfá andartök. Grunnforsenda heilsu okkar er að við búum í heilbrigðu umhverfi með fjölbreyttu lífríki þar sem er hreint loft, vatn og næring. Þetta er svo augljóst og sjálfsagt að það tekur því varla að nefna það. En samt gleymum við þessu oft, hugsum ekki út í það. Með lifnaðarháttum okkar og neyslu mengum við umhverfi okkar, röskum lofthjúpi Jarðar, skiljum eftir gerviefni sem

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=