Sjálfbærni - Rit um grunnþætti menntunar

Grunnþættir menntunar 33 þarf laun fyrir vinnu sína, bátur og veiðarfæri kosta sitt en enginn þarf að borga heimshöfunum neitt fyrir að hafa fætt af sér fiskinn og alið hann upp. Á sama hátt þarf bóndinn að fá greiddan sinn kostnað þegar hann framleiðir fóður og mat úr grasi en hann þarf ekki að borga jörðinni þar sem grasið óx. Hann kaupir oft tilbúinn áburð og dreifir á tún sín til að skila þeim næringarefnum en þau kaup geta þó verið tvíbent. Efni í áburði (fosfór) er unnið úr námum sem tæmast einhvern tíma. Sama á við um olíu sem olíuríki dæla upp í óheyrilegu magni. Olían varð til við sérstakar aðstæður í jarðlögum, er takmörkuð auðlind en kostar samt næsta lítið. Úrgangur frá olíunotkun breytir hitastigi Jarðar með alvarlegum afleiðingum án þess þó að þeir sem dæla olíunni til yfirborðs og hafa af henni tekjur þurfi miklu að svara fyrir það. Þegar hlutur er búinn til er tekið efni út úr hringrásum náttúrunnar. Þegar hlutnum er hent má segja að efninu sé skilað aftur og það hefur aftur hringrás sína í veröldinni. Eða þannig var það. Sífellt eru nú framleidd fleiri gerviefni sem hefur verið breytt á þann hátt að þau falla ekki lengur inn í hringrásir Jarðar. Þegar þeim er hent safnast þau fyrir. Í þeim er bundið efni sem nýtist ekki lengur og ruslið tekur pláss af verðmætu og knöppu rými Jarðar. Plast er líklega þekktasta efnið sem fellur í þennan flokk. Verðlagmargra hluta væri ólíkt því sem það er ef í verðinu fælist kostnaður af förgun hlutanna á þann hátt að efnin sem í þeim eru færu aftur á sinn stað í Óskilafatnaður og fjármálalæsi Í Giljaskóla á Akureyri safnast mikið af óskilafatnaði rétt eins og í öðrum skólum. Í mars 2012 áttu allir bekkir skólans að velja sér verkefni sem tengdist neyslu. Afraksturinn skyldi vera sýnilegur og settur upp á gangi í skólanum. Nemendur í 10. bekk tóku alla þá óskilamuni sem safnast höfðu um veturinn. Föt voru flokkuð eftir gerð og merkjum og leitað að verði þeirra í verslunum og á netinu. Jafnaðarverð var sett á húfur og vettlinga og haft frekar lægra en hærra. Útbúið var veggspjald með samantekt og niðurstöðum og foreldrum sendur póstur þar sem þeim var bent á verðmætin sem lágu í óskilamununum. Ýmsum brá í brún. Það er dýrt að týna fötunum sínum! Húfur: 35.500 kr. Buxur: 127.000 kr. Vettlingar og sokkar: 164.00 kr. Íþróttadót: 118.000 kr. Peysur: 186.000 kr. SAMTALS : 630.500 kr.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=