68 æfingar í heimspeki

54 68 ÆFINGAR Í HEIMSPEKI – Menntamálastofnun 2020 – 40596 um eitt spjald tæmist má spyrja hvort einhver annar þátttakandi vilji færa annað spjald og þá tekur við sama ferli og lýst var hér að framan. Leiðbeinandi getur einnig fengið hugmyndir frá þátttakendum um fleiri aðstæður sem finna má dýr í og bætt í gagnasafnið. Æfing 59: Um mannleg samskipti, réttindi, virðingu og ofbeldi Gögn: Fullyrðingar sem þátttakendur draga og taka afstöðu til. Spjöld sem lögð eru á borð eða hengd á töflu og liggja til grundvallar ákvörðunum þátttakenda þegar þeir meta fullyrðingarnar. Á spjöldunum stendur sammála, ósammála og ?. Markmið: Að mynda sér skoðun á ýmsum álitamálum sem hafa með mannleg samskipti að gera. Samræður. Aldur: Unglingastig og eldri. Lýsing: Leiðbeinandi er með spjöld sem á standa ýmsar fullyrðingar og skoðanir um ýmis álitamál sem hafa með mannleg samskipti að gera. Þátttakendur draga spjöld, mynda sér skoðun á því sem þar stendur, gera grein fyrir skoðun sinni, færa rök fyrir henni og rökræða við félaga sína. Það fer eftir fjölda þátttakenda hvernig verkefnið er unnið. Ef þátttakendur eru fáir, þ.e. um það bil tólf eða færri má sitja saman við stórt borð og nota borðið til að leggja spjöldin á. Ef þátttakendur eru fleiri má nota töflu og líma spjöldin á töfluna í stað þess að leggja þau á borðið. Þátttakendur vinna saman í pörumeða smærri hópum. Hvert par eða hópur dregur eitt spjald með fullyrðingu hjá leiðbeinanda og tekur sér tíma til að meta í hvaða flokk fullyrðingin sem dregin var fari, þ.e. sammála, ósammála eða ? . Í smærri hópum sem vinna við stórt borð eru flokkarnir þrír sammála, ósammála og ? á borðinu fyrir framan en í stórum hópum eru flokkarnir þrír skráðir á töfluna. Þegar allir hafa metið þá fullyrðingu sem þeir fengu gera pörin/hóparnir grein fyrir afstöðu sinni og setja fullyrðingarnar í viðeigandi flokk á borðinu/töflunni. Þegar hér er komið sögu þarf ekki að rökstyðja afstöðu sína þó vissulega megi útfæra verkefnið þannig að afstaðan sé rökstudd strax. Farnar eru fleiri umferðir og pörin/hóparnir draga fleiri spjöld og gera grein fyrir afstöðu sinni. Þegar búið er að fara yfir góðan slatta af spjöldum eru þátttakendur spurðir að því hvort einhver vilji gera athugasemd við einhverja ákvörðun sem komið hefur fram. Viðkomandi er beðin(n) um að gera grein fyrir athugasemd sinni og færa rök fyrir því hvers vegna eitthvað ætti að falla í annan flokk, t.d. úr sammála yfir í ósammála. Leiðbeinandi flytur spjaldið úr einum flokki yfir í annan í samræmi við vilja síðasta ræðumanns. Ef þeir sem röðuðu spjaldinu niður upphaflega vilja gera athugasemd mega þeir gera það og geta því fært spjaldið aftur í sinn upphaflega flokk. Þetta verkefni getur gengið svo lengi sem einhver gerir athugasemdir og vill færa spjald yfir í annan flokk og rökstyðja val sitt.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=