Risastórar smásögur 2026

Verkefnið Sögur er samstarfsverkefni nokkurra lykilaðila á sviði menningar, menntunar og barnaefnis, þar sem markmiðið er að efla lestur og skapandi skrif hjá börnum. Einn meginþáttur verkefnisins fólst í smásagnasamkeppni sem fór fram á vef KrakkaRÚV. Þar tóku börn á aldrinum 6–12 ára þátt og voru 17 sögur valdar úr innsendum verkum til útgáfu í bók sem og rafbók. Verkefnið sameinar þannig menntun, menningu og skapandi tjáningu barna með áherslu á að hvetja til lestrar, ritunar og virkrar þátttöku í sögugerð.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=