Sögur eru dásamlegar. Það er ekkert betra en góð saga. Það fyrsta sem kom út úr munninum á fyrstu manneskjunni sem gat talað af einhverju viti var saga. Æ, síðan höfum við elskað sögur. Við elskum að láta segja okkur þær eða horfa á þær. Nú, eða að lesa þær. En það kunna alls ekki allir að segja góðar sögur. Enn færri kunna að búa til sögur frá grunni. Toga þær út úr höfðinu með galdrastaf og koma niður á blað eða í tölvu. Í þessari bók eru hvorki meira né minna en sautján ungar manneskjur sem eru hreinlega snillingar í því að búa til sögur. Og ekki bara það heldur hefur verið einstaklega gefandi og ánægjulegt að vinna með þeim í því að gera sögurnar örlítið betri, svona eins og ritstjórarnir mínir gera við mínar sögur. Það segir mér að þetta séu einstaklega góðar manneskjur. Sem er enn mikilvægara en að vera góður sagnahöfundur. Eða hvað? Hvert sem svarið er þá er framtíðin björt á Íslandi því ég veit að þessir snillingar eiga eftir að auðga vort land og gera það hreinlega þess virði að búa hérna. Því hvar værum við án sagnanna okkar og góðs fólks? Við værum týnd og tröllum gefin. Og flutt eitthvað annað. Til hamingju, krakkar, og takk fyrir samstarfið. Við þig, lesandi góður, segi ég: Góða skemmtun! Formáli Sögur
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=