RISAstórar smáSÖGUR 2022

94 Stan Lee hló og sagði: „Komdu, ég skal sýna þér allt hérna.“ Svo fórum við um allan garðinn og hann sýndi mér allt sem garðurinn hafði upp á að bjóða. Hann sýndi mér öll listaverkin sín og það sem hann var að teikna þá stundina. Ég spurði hvort að hann væri nokkuð að búa til nýjar hetjur, hann hló en svaraði ekki. Ég var hugsi en þá spurði hann hvort ég vildi ekki skoða garðinn betur því hann langaði til að sýna mér eitthvað. Ég var að deyja úr spenningi og flýtti mér að segja „já“. Við löbbuðum um stund og fórum fram hjá mörgum tækjum þar sem krakkar voru að skemmta sér vel. Þetta var allt svo stórt. Við komum að risastórri byggingu og þar var Stan Lee með kassa úr silfri. Hann opnaði kassann varlega og ég var að deyja úr eftirvæntingu. Hann dró upp flottan búning sem var með skikkju. Búningurinn var grænn og fjólublár og með N á maganum. Ég hafði aldrei séð svona búning. „Vá, þessi er flottur. Af hverju ertu að sýna mér hann?“ „Af því að ég vil að þú fáir hann.“ „HAAA?“ „Ég hef leitað að einhverjum sem ætti að fá hann en fann engan. Svo komst þú og ég vissi að þú værir góður og myndir hjálpa öðrum sem eru í vanda. Þess vegna ákvað ég að gefa þér hann.“ Ég var alveg frosinn en spurði svo: „Bíddu, bíddu, hvaða kraftar fylgja honum?“

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=