RISAstórar smáSÖGUR 2022

83 Pétur sagði svo: „Eigum við að sjá hvort okkar kemst á undan til kúnna?“ „Já, endilega!“ svaraði ég. Þegar við vorum komin til kúnna gaf hann mér litla fötu og sagði mér að byrja að mjólka. „En ég kann ekkert að mjólka kýr,“ sagði ég við hann. „Hættu að haga þér svona, Ástrós,“ sagði hann reiðilega. „Æ, það er eitt sem ég þarf að segja þér, Pétur.“ „Hvað, Ástrós? Nú er ég orðinn þreyttur á þér.“ „Pétur, það er eitthvað rosalega skrýtið í gangi. Ég heiti ekki Ástrós. Ég heiti Laufey og ég bý ekki heldur í torfbæ. Ég bý í raðhúsi, ein með mömmu minni. Ég er í Laugalækjarskóla og hef aldrei lært að mjólka kýr. Ég kem úr framtíðinni.“

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=