Ofbeldi_gegn_börnum - page 56

54
skólinn ætti að eiga þátt í að leysa þarf kennarinn að búa sig undir að
setja málið í viðeigandi farveg í samræmi við skilgreinda verkferla.
Stundum þarf kennarinn sjálfur að eiga frumkvæði að samtali við barn
sem hann hefur áhyggjur af, það útheimtir tíma og næði. Kennari gæti
t.d. hafið samtalið á því að segja nemandanum að hann hafi áhyggjur af
því að honum/henni líði ekki vel og nefnt tiltekið dæmi. Ef nemandi er
ekki tilbúinn til að ræða málið sýnir kennarinn því skilning en bendir
nemandanum á að hann sé til staðar hvenær sem er.
Stundum reynir nemandi mjög á þolrif kennara þegar hann þarf einna
mest á þeim að halda. Þetta kann að eiga við um reið, ögrandi eða við-
kvæm börn en öllum er mikilvægt að einhver hlusti á þau og taki þau
alvarlega. Sum börn sem búa við ofbeldi eru full af skömm og sektarkennd
og því getur reynst þeim erfitt að rjúfa þögnina og treysta. Barnaverndar-
stofa hefur gefið út bæklinginn
Talaðu við mig
með leiðbeiningum um
samtöl barnaverndarstarfsmanna við börn, ásamt disklingi sem sýnir
leikna kafla með samtölum við börn með athugasemdum fagfólks. Efnið
getur gagnast kennurum sem vilja búa sig undir vandasöm og viðkvæm
viðtöl. Í myndbandinu er bent á fimm meginreglur sem starfsmönnum
barnaverndar er bent á að fylgja þegar þeir ræða við börn.
1.
Að fylgja barninu.
Barnið þarf að finna að þú stillir þig inn á
hugsanir, tilfinningar og líðan þess. Í því felst að þú leggur þig
fram um að setja þig í spor barnsins. Þú sýnir áhuga, skilning og
samkennd en dæmir ekki.
2.
Mikilvægi/gagnsemi.
Barnið þarf að finna tilgang með samtal-
inu. Þetta þýðir að samtalið má ekki snúast um það eitt að draga
upplýsingar út úr barninu.
3.
Að gefa rými.
Barnið þarf að fá að taka þátt í samtalinu á sínum
forsendum, meðal annars miðað við aldur. Það er túlkun barnsins
og reynsla sem skiptir máli, ekki að allt sem það segir sé endilega
rétt. Þetta þýðir að samtalið getur gefið barninu tækifæri til að
dýpka reynslu sína.
4.
Hrynjandi/að skiptast á.
Samtalið þarf að flæða eðlilega, barnið
er hvatt til að segja frá, þú hlustar, endurtekur, spyrð, tekur saman
og gefur upplýsingar. Ein leið til að hvetja börn til að tjá sig er að
byrja setningar og gefa barninu tækifæri til að ljúka þeim. Þannig
er komið í veg fyrir að barnið upplifi samtalið sem yfirheyrslu.
Kennari þarf
stundum að eiga
frumkvæði að sam-
tali við barn sem
hann hefur áhyggjur
af og það krefst
tíma og næðis
1...,46,47,48,49,50,51,52,53,54,55 57,58,59,60,61,62,63,64,65,66,...92
Powered by FlippingBook