Ofbeldi gegn börnum

73 TRÚNAÐUR OG SKRÁNING 8.2 Það sem barn segir frá í viðtali er trúnaðarmál og þann trúnað á ekki að rjúfa nema í samráði við barnið. Annað gildir þegar barnið segir frá atburðum sem varða barnavernd en þá þarf að upplýsa barnið um það. Það má aldrei gefa barni fyrir fram loforð um að segja ekki frá því sem fram muni koma í samræðum ykkar heldur benda því á að það gæti verið að þú þurfir að bera málið undir skólastjórann og ef svo er þá munir þú láta barnið vita af því. Allar ákvarðanir vegna meðferðar mála sem tengjast ofbeldi eða grun um ofbeldi þarf að skrá nákvæmlega og tryggja að aðilar máls hafi aðgang að skráningunni, nema það samræmist ekki hagsmunum barnsins. Góð eftirfylgd mála verður seint ofmetin og ætti að tryggja slíkt í verklagsreglum, enda hefur reynslan sýnt að mörg ofbeldismál hafa langan eftirmála. Nauðsynlegt er að skrá nákvæmlega allar ákvarðanir vegna meðferðar mála sem tengjast ofbeldi eða grun um ofbeldi

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=