263 REFERENCE SECTION Tegundir texta og markmið með ritun Við lestur eða ritun texta er mikilvægt að vera meðvituð um hver tilgangur textans er. Við getum flokkað texta í þrjá meginflokka út frá tilgangi ritunar. Með því að greina tilgang textans eigum við auðveldara með að skilja hann en það auðveldar okkur einnig að skrifa eigin texta. Fræðitexti (Informative texts) Fræðitexti er byggður á staðreyndum. Markmiðið er að endursegja, útskýra, rannsaka, lýsa eað gefa upplýsingar. Dæmi: informative article, news article, interview, instructions, summary, report, (auto)biography, historical recount, recipe, business letter, CV Frásagnartexti (Imaginative texts) Frásagnartexti getur verið persónulegur og skáldaður. Tilgangur skáldaðs texta og fagurbókmennta er að skemmta, en hann getur einnig haft alvarlegan boðskap. Persónulegur texti er oft skrifaður til að ná utan um eigin hugsanir, tilfinningar og reynslu. Dæmi: story, short story, fairy tale, poem, novel, diary, personal letter, play and film scripts, fable, song, historical fiction, personal recount Rökfærslutexti (Argumentative texts) Rökfærslutexti er skrifaður til að koma á framfæri sjónarmiði eða rökræða ákveðin málefni. Markmið slíkra texta er oft að sannfæra lesandann um að tiltekið sjónarmið sé hið rétta. Dæmi: opinion piece, discussion, advertisement, review, speech
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=