NEXT UP! 1 262 Lestrartækni (Reading strategies) Leitarlestur (Scanning) Við leitarlestur er markmiðið að finna ákveðnar upplýsingar í textanum. Augun renna hratt yfir textann og skanna hann i leit að vísbendingum. Ef þú ert til dæmis að leita að upplýsingum um hversu hátt ákveðið fjall er þá rennirðu augunum yfir textann þar til þú finnur tölur. Þá stoppar þú til að lesa nánar og athuga hvort þetta eru upplýsingarnar sem þú varst að leita að. Skimunarlestur (Skimming) Við skimunarlestur lest þú hratt í gegnum textann til að finna út hvað hann fjallar um í grófum dráttum. Þú tekur eftir fyrirsögnum, myndum, myndatextum og feitletruðum orðum. Það gerir þú til að finna út hvert inntakið er í textanum. Ítarlestur (Close reading) Við ítarlestur ferð þú nákvæmlega í gegnum allan textann. Við notum ítarlestur helst þegar við lesum skáldskap á borð við smásögur og ljóð. Þá rýnum við textann til að sjá hvort liggi dýpri merking í honum. Textinn getur innihaldið tákn eða myndlíkingar sem hjálpa okkur að skilja hann á nýjan hátt. Við ítarlesum einnig til að taka betur eftir því hvaða orð höfundur hefur valið að nota og hvernig setningar eru byggðar upp.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=