257 REFERENCE SECTION Hin leiðin kallast Sentence style. Þá eru bara fyrstu orðin í fyrirsögninni með stórum upphafsstaf, og auðvitað öll sérnöfn. Fyrirsögnin fylgir sem sagt hefðbundnum setningareglum. Dæmi: How to write a story My dream destination Í þessu kennsluefni fjöllum við mikið um textaverk eftir enskumælandi höfunda, og þá notum við sama stíl á fyrirsögn og höfundur sjálfur notar. Í textum eftir höfunda kennsluefnisins notum við Sentence style. Bein og óbein ræða Bein ræða (Direct speech) Þegar endurtekið er orðrétt það sem sagt er, kallast það bein ræða. Bein ræða er afmörkuð með gæsalöppum eða samtalsstriki. Í ensku er algengast að nota gæsalappir. Dæmi: “I am so happy,” she said. Óbein ræða (Indirect speech) Þegar við endursegjum eitthvað sem sagt er án þess að það sé orðrétt kallast það óbein ræða. Þá notum við ekki gæsalappir. Dæmi: She said she was so happy. They notað sem kynhlutlaust fornafn (Gender-neutral pronoun) Enska fornafnið they þýðir þau á íslensku. Í ensku er einnig hægt að nota they í eintölu í stað he eða she. Dæmil: If a friend speaks badly about you, then they are not a real friend. They vísar í a friend. Í stað þess að skrifa then he or sh is not a real friend má nota kynhlutlausa fornafnið they. Takið eftir því að sagnorðið beygist í samræmi við fornafnið eins og ef um fleirtölu væri að ræða: they are.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=