NEXT UP! 1 256 Tungumál (Language) Að skilja fyrirmæli með verkefnum Þegar þú leysir verkefni, hvort sem er kennslubók eða á prófi, er mikilvægt að skilja til hvers er ætlast. Taktu því vel eftir sagnorðinu í fyrirmælunum. Dæmi: Compare the two poems. (Sagnorðið compare segir þér að þú eigir að bera saman.) Hér er listi yfir sagnorð sem oft eru notuð í fyrirmælum með verkefnum: to argue – að rökstyðja, útskýra sýn þína á ákveðið málefni to compare – að bera eitthvað saman við annað to consider – að íhuga, hugleiða vandlega to describe – að lýsa, draga upp mynd af einhverju eða einhverjum to discuss – að ræða, draga fram fleiri hliðar málsins to examine – að rannsaka eitthvað to explain – að útskýra, gera grein fyrir einhverju to give reason – að rökstyðja, styðja skoðun, álit eða viðhorf með rökum to persuade – að sannfæra, telja einhvern á að gera eitthvað to reason – að hugsa, rökræða, ræða mál eða efni to recount / to retell – að endursegja, segja frá atburði to reflect on – að íhuga eitthvað, velta því fyrir sér to summarise – að taka saman, skrifa samantekt með mikilvægustu atriðunum Fyrirsagnir (Headline style and Sentence style) Enskar fyrirsagnir eru skrifaðar á tvennan hátt. Báðir eru jafn réttir. Munurinn snýst um hversu mörg, og hvaða orð eru skrifuð með stórum upphafsstaf. Að nota stóran staf í upphafi orðs kallast Capitalisation. Önnur leiðin kallast Headline style. Þá byrjar fyrsta og síðasta orðið í fyrirsögninni á stórum staf, ásamt öllum nafnorðum, sagnorðum, lýsingarorðum, fornöfnum og atviksorðum. Greinir, samtengingar og forsetningar eru skrifaðar með litlum stöfum. Dæmi: Ivan the Terrible The Curious Incident of the Dog in the Night-time
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=