237 REFERENCE SECTION Sambeyging (Concord) Í einfaldri nútíð þarf að vera sambeyging (concord) milli frumlagsins og sagnfyllingarinnar í setningunni. Einfalda nútíðin er alltaf eins og nafnhátturinn en við bætum -s aftan við þegar frumlagið er he, she og it eða önnur orð sem hægt er að setja í staðinn fyrir he, she og it: my father, Jenny, the cat Að beygja sagnorð í nútíð: Frumlag Sagnfylling Eintala 1. persóna I think 2. persóna you think 3. persóna he/she/it thinks Fleirtala 1. persóna we think 2. persóna you think 3. persóna they think Ef grunnform sagnorðsins endar á -s, -x, -ch, -sh og -o, bætum við -es aftan við: to wish – he wishes Ef grunnform sagnorðsins enda á samhljóða +y, breytist y í i og við bætum -es aftan við í 3. persónu eintölu: to reply – Mary replies Samsett nútíð (Present continuous) Samsett nútíð er notuð til að segja frá einhverju sem er að gerast akkúrat núna, um yfirstandandi ferli eða eitthvað sem er að fara að gerast. Samsett nútíð myndast með hjálparsögninni to be og aðalsögninni með -ing aftan við. Dæmi: They are leaving right now. (gerist núna) I am studying at the University. (yfirstandandi ferli) She is coming tomorrow. (gerist í náinni framtíð)
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=