Mannslíkaminn - Litróf náttúrunnar

115 SEX OCH SAMLEVNAD 4 Í sumum fjölskyldum þykir það mikil­ vægt að stelpur stundi ekki kynlíf áður en þær gifta sig. Stelpur geta fengið á sig illt orð ef þær hafa sofið hjá mjög ungar eða ef þær hafa sofið hjá mörg­ um. Er hætta á að orðspor stráka versni jafn mikið ef þeir sofa hjá mörgum eða líta sumir á þá sem karlmenni og kvennagull? Hvað finnst þér um þetta? 5 Lítur þú tvær stelpur, sem dansa saman, sömu augum og tvo stráka sem gera það? Færðu rök fyrir svarinu. 6 Hafa strákar sömu möguleika á að sauma eigin föt og stelpur og hafa stelpur sama möguleika á að stunda hnefaleika og strákar? Færðu rök fyrir svarinu. 7 Hvað merkja þessi orð í þínum huga: kvenlegt, karlmannlegt og mann­ legt? Þessi dæmi vísa mörg til óþarfrar mismununar. Við getum sjálf aukið jafnrétti kynjanna með því að líta á hvern einstak­ ling sem manneskju sem býr yfir mörgum eiginleikum og hefur sama rétt án tillits til þess af hvaða kyni manneskjan er eða hvaða kynhneigð hún hefur.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=