29 Ljóðagerð Vinnið 2–4 saman. Semjið ljóð sem Lúkas gæti lesið fyrir köttinn til að róa hann og fá hann til að hugsa um eitthvað annað en að elta mýs. Ræðið saman: Á ljóðið að vera fyndið, fallegt eða skrýtið? Um hvað á ljóðið að fjalla? Á það að ríma? Skrifið niður hugmyndir, semjið síðan ljóðið og flytjið það fyrir bekkinn. Sögugerð Semjið sögu sem Lúkas gæti lesið fyrir köttinn. Hugsið um og ræðið: Hvers konar saga myndi róa kött? Ætti hún að vera fyndin, spennandi eða róleg? Hverjar eru aðalpersónurnar? Hvernig endar sagan? Munið að gefa sögunni heiti sem passar við söguþráðinn. Ritun Ímyndið ykkur að þið séuð mús eða annað dýr sem lendir í erfiðum aðstæðum. Skyndilega munið þið eftir einhverju sem þið lásuð í bók. Hvað var það? Hvernig hjálpar þekkingin ykkur? Hvernig tekst ykkur að leysa vandann? Munið eftir upphafi, miðju og endi. Gefið sögunni heiti sem passar við efnið.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=