28 Verkefni Sögur geta kennt okkur margt – um heiminn, aðra og okkur sjálf. Lúkas var hugrakkur og skynsamur og nýtti sér það sem hann hafði lært úr bókum. Í verkefnunum fáið þið tækifæri til að velta sögunni fyrir ykkur, nota eigið ímyndunarafl og skapa eitthvað nýtt. Góða skemmtun! Umræður Af hverju ætli Lúkas hafi lesið svona margar bækur? Hvernig hjálpaði þekking Lúkasar honum? Hvað hefðuð þið gert í sporum Lúkasar eftir að kötturinn klófesti hann? Hvaða bók hafið þið lesið eða hlustað á sem hefur frætt ykkur um eitthvað? Hvað lærðuð þið af bókinni? Hverjar eru uppáhaldsbækurnar ykkar? Af hverju? Myndasaga Búið til myndasögu eða teiknið mynd sem sýnir eitthvað gagnlegt eða sniðugt sem Lúkas gæti hafa lært úr bók. Skrifið síðan 2–3 málsgreinar: Hvað lærði Lúkas? Hvernig hjálpaði það honum?
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=