Kveikjur

148 Hér eru þrjú bréf frá unglingum sem þú skalt skoða. 9. Svaraðu tveimur af bréfunum í nafni póstsins. 10. Skrifaðu bréf til Póstsins. Efnið má vera um hvað sem þér dettur í hug – en það skemmir ekki fyrir að hafa það skemmtilegt og skrýtið. ÁSTFANGINN Kæri Póstur. Þannig er mál með vexti að ég er ofboðslega hrifinn af stelpu sem var með mér í bekk í fyrra (og vonandi verður hún það næsta vetur líka). En nú er sumar og enginn skóli og þá sé ég hana örsjaldan. Mig langar alveg rosalega til að byrja með henni en ég veit ekki til þess að hún sé með öðrum eða hrifin af öðrum. Eitt er víst að hún er ekki hrifin af mér því þegar ég sé hana eða hitti þá veitir hún mér enga sérstaka athygli heldur heilsar mér bara eins og hverjum öðrum strák. Elsku Póstur, hvað get ég gert til þess að ná í hana? Þú verður að svara þessu bréfi fyrir mig og gefa mér góð ráð 1939-7834 Naga svo ferlega neglurnar Kæri Póstur: Þú sem allt veist, hvernig á ég að fara að því að hætta að naga neglurnar? Þær brotna og klofna svo ferlega að ég get engan veginn stillt mig um að naga þær og bíta og svo er þetta orðinn einn vítahringur. Er til eitthvað til að bera á neglurnar og get ég tekið eitthvað inn til þess að þær vaxi betur? Fljótur nú og ég tek það fram að ég er EKKI STELPA! Margblessaður Nagli Kæri Póstur: Ég er í hræðilegum vanda. Þannig er mál með vexti að ég var að fá freknur og mér finnst það svo hræðilega ljótt. Hvað á ég að gera? Er hægt að losna við þetta og þá hvernig? Kæri Póstur, þú verður að hjálpa mér. Ein freknótt.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=