Kveikjur

146 Sjónarhorn Í Hjartslætti er sagt frá þeim Írisi og Tristan. Fyrst fáum við að kynnast þeim út frá sjónarhorni Írisar og síðan með augum Tristans. Það eru margar hliðar á flestu sem fyrir okkur ber og því er mikilvægt að skoða og velta fyrir sér sjónarhorni þess sem segir frá. Líttu á þessa mynd. Hvernig heldur þú að frásögn lögreglumannanna sé? En þess sem var handtekinn? Á hvern hátt eru sjónarhorn þeirra mismunandi? Hvað með þessa staðhæfingu um bíómynd? „Þessi mynd er svo ömurlega leiðinleg að hálfa væri hellingur.“ Heldur þú að allir bíógestir hafi sagt þetta um myndina? En leikstjórinn og aðalleikarinn? Er sjónarhorn stráksins og móðurinnar það sama hér? ÞORSTEINN!! Af hverju hlustarðu ekki þegar ég er að tala við þig? Æi...... Af hverju ertu að tala við mig þegar þú veist að ég er ekkert að hlusta?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=