Kveikjur

Náttúrubaðið Ef þú leyfir huganum að reika geta ólíkar kveikjur beint honum í ýmsar áttir. Skoðaðu myndina hér fyrir ofan og notaðu hana í ólík verkefni: p Skrifaðu brandara um baðkarið. p Hugsaðu þér að þessi ljósmynd sé notuð í auglýsingu. Hvað er verið að auglýsa? Hver er fyrirsögnin? Hver er varan? p Í hvaða samhengi væri fáránlegt að nota svona mynd? p Gerðu þér í hugarlund að þú setjir myndina á samfélagsmiðla. Hvernig myndirðu fylgja henni úr hlaði ef innleggið ætti að vera fyndið? En ef það ætti að vera gáfulegt? p Skrifaðu stutta lýsingu í ferðahandbók um þennan stað. 133

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=