Kæra dagbók 3

32 Kæra dagbók 3 17. Póstkort Þetta kann ég núna – og margt fleira! Kæru vinir á Sandeyri! Nú erum við að flytja burt frá Íslandi. Við ætlum alltaf að muna eftir Sandeyri og ykkur öllum. Við vonum að þið gleymið okkur ekki. Skrifumst endilega á, t.d. í tölvupósti eða á fésbókinni. Takk fyrir margar skemmtilegar samverustundir. Sonja og Símon Til allra í Sandaskóla Sandeyri Ísland Krossaðu í réttan reit. Ég kann Ég kann vel! Ég þarf að mjög vel! læra betur! Ég kann ný orð sem tengjast vetrinum. Ég kann ný orð um hunda og gæludýr. Ég kann ný orð um tónlist, hljóðfæri og söng. Ég kann ný orð sem tengjast list- og verkgreinum í skóla. Ég kann ný orð sem tengjast sumrinu. Ég kann ný orð og orðasambönd sem eru notuð þegar við borðum. Ég kann ný orð um náttúruna og umhverfið. Ég þekki merkisdaga um jól og áramót. Ég þekki heimsálfurnar og kann að nota landakort. Ég þekki heiti spilanna. Ég kann ný orð um sjúkrahús og starfsfólkið þar. Ég kann ný orð um rúm og sængurfatnað. Ég kann ný orð um stjörnur og sólkerfi. Ég kann ný orð um staðsetningar. Ég skil og kann að nota nokkrar íslenskar skammstafanir. Ég skil og kann að nota nokkra íslenska málshætti og orðtök.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=