Kæra dagbók 3

40271 Námsefnið Kæra dagbók 3 er samið fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku. Einkum er miðað við nemendur á aldrinum 10–14 ára sem hafa áður farið í gegnum fyrri bækurnar í flokknum eða hliðstætt efni. Námsefninu er ætlað að uppfylla m.a. þau markmið aðalnámskrár grunn- skóla, fyrir íslensku sem annað tungumál, að nemandi geti • skilið einföld skilaboð á íslensku og brugðist við þeim • notað íslensku til að tjá tilfinningar sínar og sagt frá hugsunum sínum og reynslu • tekið þátt í samtali á íslensku og náð athygli viðmælanda • notað íslensku til að taka þátt í leikjum og í daglegum samskiptum við börn og fullorðna • tekið þátt í umræðum í skóla um námsefni og annað sem er á dagskrá • spurt og beðið um útskýringar, m.a. á einstökum orðum og orðatiltækjum • borið fram helstu málhljóð í íslensku og talað með nokkuð skýrum framburði • lesið og skilið einfalda texta sér til gagns og ánægju • skrifað stutta, einfalda frásögn, lýsingu eða skilaboð Höfundar eru Jóhanna G. Kristjánsdóttir og Ragnheiður V. Sigtryggsdóttir. Teikningar eru eftir Írisi Auði Jónsdóttur. Ítarefni í pdf-formi og hljóðbók er fáanlegt á www.mms.is . KÆRA D AGBÓ K

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=