Hólmasól í háska

VANGAVELTUR OG HUGLEIÐINGAR VIÐ 10. KAFLA Orðið dreki var notað um glæsilegan knörr (víkingaskip) með útskornu höfði.  Níð er baktal eða móðgun.  Náttmál eru klukkan níu að kvöldi. Meira er um tímann aftast í bókinni.  Tvíburarnir Hámundur og Geirmundur heljarskinn koma fyrir í fornritunum. Faðir þeirra var héraðskonungur í Hörðalandi í Noregi og móðir þeirra kóngsdóttir í Bjarmalandi. Viðurnefnið heljarskinn er talið vísa í útlit þeirra. Hámundur fylgdi Helga magra til Íslands og fékk land frá honum en Geirmundur var sjálfur landnámsmaður og nam land við Breiðafjörð og á Hornströndum. Geirmundur er sagður ættgöfugastur allra landnámsmanna Íslands.  Frásögnin af fæðingu tvíburanna er merkileg. Móður þeirra þótti þeir svo ljótir þegar þeir fæddust að hún skipti á þeim og syni ambáttar sem henni þótti fallegri. Tvíburarnir ólust upp hjá ambáttinni til þriggja ára aldurs en þá komst upp um skiptin. Þessa sögu er hægt að lesa í bókinni Íslendingaþættir sem er á heimasíðu Menntamálastofnunar.  Landvættirnar voru fjórar verur sem taldar voru gæta Íslands. Hver landsfjórðungur hafði sína landvætti. Landvættur Norðurlands var gammur sem er stór grimmur fugl.  Hér kemur fyrir þjóðtrú tengd landvættunum, sem birtist í elstu lögum landsins. Þeir sem komu siglandi á dreka urðu að taka drekahöfuðið af skipinu áður en þeir komu nærri landi, annars myndu þeir kalla yfir sig reiði landvættarinnar. 79

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=