Hitt og þetta

44 Gæludýr Gæludýr Gæludýr eru mismunandi Átt þú gæludýr? Ef ekki, hvernig gæludýr myndir þú vilja eiga? Myndir þú vilja eiga krúttlegan kettling eða framandi gæludýr eins og gráan afrískan páfagauk? Eða kannski ógnvekjandi gæludýr eins og snák eða sporðdreka, eða vinalegt og gáfað gæludýr eins og hund eða hest? Sama hvað þú velur á það eftir að kosta peninga, tíma og vinnu Það getur verið dýrt að kaupa gæludýr Grár afrískur páfagaukur, til dæmis, kostar um 150 000 krónur Þá áttu eftir að kaupa búr og mat handa páfagauknum Ef gæludýrið þitt veikist verður þú að fara með það til dýralæknis og það getur verið dýrt Þú verður að eyða tíma með dýrinu þínu á hverjum degi, tala við það og sýna því athygli Það er mikil vinna að hugsa um gæludýr Það þarf að hreinsa fuglabúr, það þarf að skipta um sand í kisuklósetti, og hestar og hundar þurfa hreyfingu Það þarf að bursta feldinn á mörgum hundum og köttum, og það þarf að húsvenja hvolpa og kettlinga

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=