Hitt og þetta

Leskaflar og verkefni Þessi bók er einkum ætluð nemendum á unglingastigi sem eru með annað móðurmál en íslensku en hafa náð nokkurri færni í íslensku máli. Henni er ætlað að efla orðaforða þeirra, bæta lesskilning og vera eins konar brú yfir í lestur texta sem mæta nemendum á þessu aldursstigi. Efnið er valið með hliðsjón af mismunandi bakgrunni lesenda og kemur úr ýmsum áttum eins og heiti bókarinnar gefur til kynna. Verkefni fylgja hverjum kafla þar sem athygli nemenda er beint að einstökum orðum, ásamt því að gera kröfur um lesskilning. Bókin nýtist einnig íslenskum nemendum sem þurfa skýra framsetningu á efni. Allir textar eru lesnir inn á hljóðbók sem hlaða má niður af vef Menntamálastofnunar, mms.is Efnið má einnig prenta út af vef stofnunarinnar. Jacqueline Friðriksdóttir og Ragnheiður Valgerður Sigtryggsdóttir hafa tekið efnið saman. Teikningar eru eftir Böðvar Leós og Inga Jensson. Hitt og þetta Íslenska sem annað tungumál 9938

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=