Varúð - Hér býr ... Varúlfur

84 í annað í dyragættinni. Mamma spennist upp og lítur skelkuð í áttina að okkur. Varúlfurinn spyrnir sér á ógnarhraða úr neðstu tröppunni upp í þá efstu og króar mömmu af. Stórir hrammarnir ríghalda í axlir mömmu. Ég horfi á gular og grófar klær varúlfsins. Reyni að hugsa ekki hversu beittar þær hljóta að vera. Hvernig þær gætu skorið … Áður en ég næ að hugsa það til enda heyri ég hávært hvæs innan úr íbúðinni. Hvæsi kemur á harðaspretti og stekkur á bak varúlfsins! Hann læsir klónum í feld úlfsins sem sleppir taki á mömmu.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=