Varúð - Hér býr ... Varúlfur

85 SLEIKTÚTUM Marius togar mömmu inn fyrir. Hún lítur á mig og kreistir mig fast. „Er í lagi með þig, ástin mín?“ spyr mamma með tárin í augunum. Áður en ég næ að svara heyrum við varúlfinn spangóla hátt. Urr og hvæs berast frá garðinum. Ekkert okkar þorir að kíkja en ég finn að ég verð að athuga með Hvæsa. Við ríghöldum hvert í annað og stígum hálft skref út á tröppurnar. Úlfhildur teygir sig í átt að himni og spangólar hátt. Hún hefur náð taki á Hvæsa og heldur honum þétt að jörðinni. Svo beygir hún sig yfir hann og opnar kjaftinn upp á gátt. „Nei!“ hrópa ég og reyni að losa mig frá mömmu. Marius og mamma neita að sleppa mér. Ég finn tár spýtast fram í augnkrókana. Varúlfurinn ætlar að éta köttinn minn! Úlfhildur horfir hvössum augum á Hvæsa sem

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=